... gerir fólk betra

Heildræn meðferðarstofa
- nudd - nálastungur - sálfræðiráðgjöf - heilun - hómópatia -

Árný Ingvarsdóttir

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

arnySálfræðingur / NLP master practitioner

 

Tímapantanir og fyrirspurnir:

  • í tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • í síma 5780790

 

Árný Ingvarsdóttir útskrifaðist með BA í sálfræði frá Háskóla Íslands haustið 2005 og með embættispróf (Cand.psych.) í sálfræði frá Háskólanum í Árósum haustið 2008. Árið 2007 lauk hún auk þess NLP practitioner og NLP master practitioner námskeiðum (neuro linguistic programming).

Á námsárum sínum starfaði Árný í hlutastarfi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík sem persónulegur ráðgjafi fyrir börn í vanda. Vorið 2008 tók hún starfsnám á kvennasviði og krabbameinsdeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss, þar sem skjólstæðingar hennar voru barnshafandi konur, nýbakaðar mæður sem og krabbameinssjúkir og aðstandendur þeirra. Að auki tók hún þátt í kennslu námskeiðs sem byggt er á grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar og er ætlað fólki í endurhæfingu eftir slys og veikindi. Þá var hún aðstoðarleiðbeinandi á námskeiði fyrir unglinga í áhættuhópi fyrir þunglyndi.

Fyrst eftir útskrift sinnti Árný hlutastafi við hegðunarmótun og sérkennslu, en haustið 2009 stofnaði hún ásamt Thelmu Gunnarsdóttur útgáfufyrirtækið Hvað get ég gert sf. sem sérhæfir sig í þýðingu og útgáfu sálfræðibóka fyrir börn. Útkomnar bækur eru þrjár talsins; "Hvað get ég gert við of miklar áhyggjur?","Hvað get ég gert þegar reiði tekur völdin?" og "Hvað get ég gert við of mikla neikvæðni?". Sjá www.hvadgeteggert.is

Í dag er Árný sjálfstætt starfandi sálfræðingur og fyrirlesari, kennir á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra auk þess sem hún stundar meistaranám í hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

Árný býður upp á sálfræðimeðferð og NLP ráðgjöffyrir fullorðna, auk þess sem hún veitir foreldrum ráðgjöf.

Síðast uppfært 11. Desember 2011
 
canakkale canakkale canakkale truva search
canakkale canakkale canakkale truva search
escort bayan escort bayan